Jæja hvar skal byrja. Það er langt síðan ég bloggaði síðast en það hefur sínar skýringar. Ég lenti nefnilega í því í síðustu viku að tölvan mín skemmdist og þurfti því að fara með hana í viðgerð og skipta um skjáinn og verðið fyrir eitt stikki skjá nú til dags? 70.000 kr. Þjónustan var hins vegar hin fínasta hjá Apple umboðinu hér og ég er kominn með tölvuna í hendur aftur og því kominn tími til að segja hvað hefur gerst nýlega hér í Kóreu.
Ó, það er svo mikið sem ég þarf að segja, en ok, byrjum á byrjuninni. Um þar síðustu helgi fór ég með nokkrum vinum á Leðjuhátíð (Boryeong Mud festival). Það var helvíti skemmtilegt að leika sér í leðjunni, renna sér niður rennibrautir, glíma í drullunni og dansa í leðjurigningunni. Ég náði því miður ekki að ná mynd af mér öllum drullugum en hvað með það. Síðan bilaði litla Samsung myndavélin mín líka, en hvað með það líka. Þetta var frábær ferð.
Síðan kláraðist önnin í síðustu viku svo nú er ég kominn í frí þangað til í lok ágúst. Ég fæ einkunninar mínar á morgun og er alveg rosalega spenntur að vita hvað ég fékk. Báðir áfangarnir mínir voru frábærir, svo væntingarnar eru miklar, vonandi verða einkaninar í samræmi við það.
Fór í Jongno Tower með fullt að fólki til það kveðja þá sem eru á leið heim. Fengum okkur aðeins að drekka á efstu hæðinni þar sem frábært útsýni er yfir borgina, og þarna er flottasta klósettaðstaða sem ég hef séð by the way, en ok. Urðum vitni að risastórum mótmælum á götunni fyrir neðan okkur á meðan við vorum þarna. Þúsundir lögregluþjóna, vatnsbyssutrukkar?, og hvað eina. En þessir síðustu dagar hér í sumarskólanum hafa verið frekar sorglegir, það er svo mikið að fólki að fara heim, og það er leiðinlegt að segja bless við alla nýju vinina.
Hvað fleira er ég búinn að gera? Ég fór á fiskimarkað sem var svosem ágætt fyrir utan þessa hræðilegu fiskifýlu, síðan í Boremae Park; þar sem ég fann meðal annars gamlar Kóreskar hérflugvélar og ein þeirra var Cessna Skymaster, alveg eins og pabbi átti. Ég á svo margar góðar minningar frá þessari flugvél og því var gaman að sjá hana aftur (að vísu ekki sama eintakið, en whatever). Ég fór í bíó á Wanted. Bíó hér í Kóreu eru aðeins öðruvísi en heima á klakanum. Það eru númeruð sæti sem þarf að velja fyrir sýningu og sætavísir sem vísar til sætis. Það er hægt að kaupa bjór og harðfisk ásamt því venjulega svo þetta var frekar skemmtileg reynsla. Fór líka í 63 bygginguna í Seoul. Sem er 63 hæðir, duh:=. Þetta er hæsta byggingin í borginni og því frábært útsýni yfir svæðið. Það fylgdi líka í kaupbæti miði á Hello Kitty listasýningu, sem var nú bara frekar skemmtileg.
En þá að aðalmálinu. Eins og sum ykkar vita þá hafði ég planað að fara í heimsreisu hérna í Asíu í ágúst. Planið var að fara til Japan, Hong Kong, Taílands, Malaysíu, Singapore og Ástralíu. Ég var búinn að finna frábært tilboð sem gaf mér gott verð á ferðalagið en nú í fyrradag þá kom SMÁ babb í bátinn. Ég hafði verið í sambandi við Air China til þess að bóka þessa ferð í nokkra daga. Það var alltaf eitthvað sem þurfti að laga. Til dæmis: “þú mátt ekki fljúga með þessu flugfélagi frá þessum stað þangað”, “það er ekki laust sæti í þessari flugvél, veldu annað flug” og svo framvegis. Svo eftir um 10 daga tölvupóst samskipti þá var mér sagt að nú væri allt komið í lag og ég gæti farið á skrifstofu þeirra í Seoul að ná í miðana og borga fyrir þá þar. Svo ég fer þangað, en starfsmennirnir kannast ekkert við þetta svo ég neyddist til þess að fara aftur heim. Þá var ég búinn að fá tölvupóst sem sagði að ég þyrfti að ná í miðana mína í dag annars gæti ég ekki fengið þá. Svo ég fór aftur á skrifstofuna. Þá vildu þeir ekki leyfa mér að fá miðana, sögðu að tilboðið væri útrunnið og miðanir því ógildir og eitthvað blabla helvítis bull. Og þetta var þeim að kenna, því þeir voru alltaf að breyta einhverju í bókuninni minni. Síðan vildu þeir rukka mig meira fyrir að breyta bókuninni aftur á aðra dagsetningu sem hefði stytt ferðina svo mikið að það borgaði sig engan veginn að fara í ferðina. Svo ég lét það eiga sig því þessi þjónusta var engan veginn að gera sig. Því gaf ég bara skít í þá og fór heim án miða. Og eins og staðan er í dag þá veit ég ekkert hvað ég ætla að gera, hvort ég fer eitthvað að ferðast. EN EITT ER VÍST, ÉG ÆTLA ALDREI AÐ NOTA ÞJÓNUSTU AIR CHINA AFTUR, ég hef aldrei lent í annari eins þjónustu hjá fyrirtæki. ÉG RÁÐLEGG ÞVÍ ÖLLUM AÐ NOTA ALDREI AIR CHINA, STARFSFÓLKIÐ ÞEIRRA ERU ALGJÖRIR HÁLFVITAR OG ÞEIR GERA ÖRUGGLEGA ALLT TIL ÞESS AÐ KLÚÐRA MÁLUNUM. ÞIÐ HAFIÐ VERIÐ VÖRUÐ VIÐ!
En ok, ég vil nú ekki enda þetta blogg á leiðinlegu nótunum svo ég bendi enn og aftur á að það koma nýjar myndir inná http://gallery.me.com/rurkbjo#gallery á næstu dögum svo endilega tékkið á því.
Síðan var ég að flytja í nýja íbúð í gær, sem er mun betri en sú gamla. Loksins loftræsting, YEAH!
Þangað til næst, Kveðja frá Kóreu,
Rúrik


