Jæja, vegna mikillar eftirspurnar hef ég ákveðið að byrja að blogga um líf mitt hér í Kóreu.
Ok, smá yfirferð síðan ferðalagið byrjaði;
Ferðalagið byrjaði með flugi til London 19. júní. Þar gisti ég eina nótt áður en leiðin lá á Heathrow flugvöll þar sem flug með Lufthansa á leið til Seoul í Suður Kóreu með millilendingu í Munchen í Þýskalandi beið mín. Flugið til Kóreu var 15 tímar. Ég lenti svo 05:30 að morgni þann 21. júní.
Ég er að taka tvo kúrsa hérna úti; Innovation in East Asia og Comparative business cultures in the west and east. Síðan er ég líka í kóreskunámi. Djöfullinn er það erfitt, úff!
Charles Hampden-Turner sem kennir Comparative business kemur frá Cambridge University í Englandi og hefur líka kennt hjá Harvard. Raymond Ferris Abelin kennir Innovation in East Asia kemur frá Hollywood þar sem hann hefur unnið í skemmtanabransanum og meðal annars teiknað Scooby-Doo í upphafi ferilsins.
Ég er í íbúð sem er svona í ca 30-35 mín fjarlægð frá skólanum. Mér líður bara mjög vel hérna í Seoul, þetta verður betra og betra með hverjum deginum. Ég er farinn að rata nokkuð vel um borgina og búinn að læra á strætó og subway kerfið. Það eina sem ég hef ekki ennþá vanist hérna er hitinn. Það er búið að vera ca 30°C+- síðan ég kom hingað, sem er smá breyting frá litla landinu okkar. Rigningartímabilið var líka að byrja svo þetta er frekar skemmtilegt veður hérna.
Er búinn að gera ýmislegt hérna á þessum fyrstu tveim vikum. Ég fór í skoðunarferð á stríðsminjasafn Kóreu (e. Korea War Memorial) sem var bara ágætis skemmtun, margt að skoða. Fór síðan á Seoul World Cup Stadium, en ekki til þess að fara að horfa á leik, fékk mér að borða á Lotteria (sem er einskonar Kóreskur McDonalds), pantaði Squid burger (Kolkrabbaborgara/Smokkfiskborgara?) sem var alls ekki gott. Algjör viðbjóður
. Það er líka verslunarmiðstöð, bíó, leiktækjasalur og brúðkaupssalir/kapellur (haha) þarna.
Á fimmtudaginn síðasta fór ég og keypti nýja myndavél. Nikon D300, algjör klassagripur og kostar meira en helmingi minna en á klakanum, og alls konar aukahluti. Um kvöldið fór ég síðan á bar og fékk mér nokkra drykki, fórum síðan á Karíókí bar þar sem ég gjörsamlega missti mig í gleðinni og missti röddina í tvo daga. En hún er kominn aftur sem betur fer.
Á föstudaginn fórum við á sýningu sem heitir B-Boys, sem er svona breakdans/hip hop og fleira blandað saman í eina sýningu. Það var bara helvíti gaman á sýningunni, og það sem setti eiginlega toppinn á sýninguna var þegar einn áhorfandi var rifinn úr sæti sínu til þess að taka nokkur dansspor, OG ÞAÐ VAR ÉG sem datt í lukkupottinn. Það lukkaðist þó allt vel, ég sem hef aldrei stigið á svið áður og aldrei breakdansað tók alveg þvílíka snúninga og alles, kom meira að segja sjálfum mér á óvart að ég gæti þetta. Áhorfendur kunnu að meta taktana hjá mér og ég fékk meira að segja lófatak fyrir tilburðina, hehe
Á laugardaginn fór ég síðan á fótboltaleik í Suwon, það tók ca. 1,5 klukkutíma að ferðast á völlinn með lest og rútu. Sá leik með Suwon Samsung Bluewings á móti Incheon United. Bluewings eru víst besta liðið í deildinni og hafa ekki tapað leik ennþá og sitja því á toppnum. Völlur félagsins tekur ca. 40000 manns og var notaður á heimsmeistaramótinu 2002. Á leiknum voru ca 25000 áhorfendur sem dönsuðu og sungu allan tímann. Sumir söngvarnir voru mjög hlægilegir, t.d “O, Happy, Happy Goal, O happy happy goal”. En leikurinn var bara ágætis skemmtun og endaði með sigri Suwon 2-0. Um kvöldið fór ég síðan á bar að fá mér nokkra drykki og spila pílukast og svoleiðis. Kom ekki heim fyrr en hálf fimm um nóttina.
Fyrsti dagurinn í þriðju viku búinn, var í prófi í dag í Kóresku, veit ekkert hvort það gekk vel eða ekki. Kemur í ljós. Á miðvikudaginn fer ég síðan í Pizzapartý sem skólinn heldur, á fimmtudaginn að sækja um nýtt vísa fyrir dvöl mína í Kóreu næstu 5 og hálfan mánuð, vonandi gengur það vel. Á föstudaginn fer ég síðan í tveggja daga ferðalag á stað sem heitir Young-Ju. Þar fer ég í brúðkaup vina minna Marek og Lucie frá Tékklandi
Ég er búinn að setja nokkrar myndir úr ferðinni á netið. Þær eru á slóðinni http://gallery.me.com/rurkbjo#gallery
Nýjar myndir úr ferðinni munu svo koma inn á sama stað.
Síðan vil ég líka minna á að nú er hægt að kaupa bókina mína, Dust, á ensku og íslensku á blurb.com
http://www.blurb.com/user/store/rurkbjo
Jæja, þá held ég að það sé komið nóg í bili.
Kveðja frá Kóreu,
Rúrik



flott blog, skemmtu þér vel þarna úti
Jæja Rúrik kallinn þetta var nú skemmtileg lesning. Lítur út fyrir að þú sért að pluma þig frábærlega á framandi slóðum! Þetta er glæsilegt hjá þér! Haltu áfram að skrifa og leyfa okkur að heyra af ævintýrunum, breikdansi og smokkfiskaborgurum. Já og góða skemmtun í brúðkaupinu.
Bestu kveðjur frá pabba þínum og Ingimari.
Inga